Hugleiðingar úr Heiðmörk
14.03.2009 11:30:29 / saramikk

Bloggiddiblogg


Ég er frekar löt að blogga en síðan síðast er ég búin að fara til Reykjavíkur

og löngu komin heim aftur. Við áttum mjög góða daga með fjölskyldu og vinum.

Nú er að koma að annari fer til Reykjavíkur að þessu sinni er ferming, hann

Valli minn er ná þessum áfanga í lífinu. Ég finn mér alltaf eitthvað spennandi að gera

og alltaf er eitthvað að hlakka til. Ég fór í silfursmíði  í vikunni og smíðaði mér hring sem

ég er verulega ánægð með. Vona að Þóranna verði fljótlega með annað námsskeið ég

verð auðvita með. Ég var hjá mömmu í gær, við tókum allt glingur og röðuðum upp

á nýtt og fórum svo á rúntinn. Ég á von á að Dandý komi í heimsókn í dag, það er svo langt

síðan hún kom síðast. Hlakka til dagsins.

 

Gott að hugsa um í kreppunni.

 

 Ríkur er enginn af því sem hann á,

 heldur hinu sem hann með fullri reisn

 getur farið á mis við

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.02.2009 19:40:04 / saramikk

hha


Það eru liðnir fjórir dagar síðan Helga fór aftur suður,

hennar er sárt saknað það frábært að hafa svona vinnukonu og svo var bara svo gaman hjá okkur.

Eftir tíu daga förum við Toni til Reykjavíkur að vera við útskrift hjá Ella mínum,

og er það líka tilhlökkunarefni, og auðvitað að hitta alla fjölskylduna og vini.

Komin tími til að hitta börn og barnabörn við höfum ekki farið til Rvk. í hálft ár.

Annars er lítið að frétta héðan úr Heiðmörk 9.lífið gengur sinn vanagang og það

er engin kreppa hér, alla vega ekki ennþá.

 

 

 

 

 

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

31.01.2009 20:38:21 / saramikk

Síðasti jan.

  

31.janúar 2009.

 

Þetta hefur verðið einn af þessum frábæru dögum.

Dandý kom í heimsókn með öll börnin, Helga ákveðin að koma á

morgun og stoppa einhverja daga. Frábær gönguferð í þessu fallega veðri

út í Söxu og svo matur á Cafe Margret í kvöld.

Í fyrramálið er svo bútasaumur og sjálfsagt eitthvað meira skemmtilegt

það er jú sunnudagur á morgun.  Vonandi verða einhverjir á rúntinum sem

líta inn.

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.01.2009 19:55:09 / saramikk

Þorri



Þá er bara Þorrinn rétt að skella á.

Á föstudagskvöld verður Mikkarablótið það verður hjá Jónu og Atla í þetta sinn,

það verður gaman að hitta mína léttgeggjuðu ættingja eins og alltaf.

Í gær var saumaklúbbur hér hjá mér og í kvöld fór ég í jóga hjá Sollu.

Hér var verið að opna tækjasal á loftinu í íþróttahúsinu og hann verður maður nú aðeins að nota þegar timi er til. Svo er Rauði Krossinn að opna í Heimalundi, þar á að vinna á mánudagskvöldum, prjóna og sauma ungbarnaföt sem eru svo send út í heim.

 

 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.01.2009 20:09:37 / saramikk

þriðjudagur

Ég skrapp til mömmu í dag, hef reyndar komið til hennar annan hvern dag síðan hún flutti. Hún er ánægð með sig og alla sem henni sinna. Nú er ég hætt að skifta mér af nú þegar ég veit að hún er í góðum höndum. Leiðinlegt að vera alltaf með nefið niðri í öllu.

Annars er bara allt gott að frétta af mér og mínum, Kobbi kominn heim frá Kanada,

Elli fluttur í nýja íbúð og byrjaður í skólanum, Helga að byrja í nýrri vinnu og Dandý

í skólanum  og er með spinning á morgnana. Barnabörnin eru svo auðvitað alveg frábær

öll sem eitt, nema hvað.

 

 Smá speki. 8|

 Í hvert sinn sem þér finnst lífið óárennilegt,

 skaltu minnast þess að enginn komst

 þangað sem hann er í dag án þess að leggja

 upp þaðan sem hann var í gær.


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.01.2009 19:21:01 / saramikk

fastir liðir


:lol:

Þá er hún Lilla Jóns flutt úr Þrastalundi og inn á Uppsali.

Hún fékk frábært herbergi og er með besta útsýnið yfir bæinn.

Allir ættingjarnir eru ánægðir með fluttninginn og ég held bara

mútta líka, þarna þekkir hún flesta íbúana og það er hægt að hafa

nóg fyrir stafni. Svo er Þrastalundur auðvitað á sínum stað og verður

hægt að skreppa heim ef vilji er fyrir hendi.

Það er allt að komast í fastar skorður eftir jólasukkið, við byrjum í jóga  

á morgun og bútasaumskellur byrjaðar að dúlla sér á sunnudagsmorgnum.

Sem sagt allt í góðu.

 

 

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

01.01.2009 22:00:58 / saramikk

2009


Gleðilegt nýár.

Við áttum frábært gamlárskvöld með fjölskyldunni í Flataseli, góður

matur og góð skemmtun, komum heim kl.þrjú í nótt.

 Í kvöld voru svo mamma, Gunsa,Ingvar, Gummi,

Ásta, Jóna og Atli hjá okkur í mat, gott kvöld með góðu fólki.

Sem sagt nýtt á lofar góðu.

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

31.12.2008 12:13:06 / saramikk

Gamársdagur


Það líður að áramótum, bara rétt tæpir tólf tímar eftir af þessu ári

sem var bæði gott og skemmtilegt. Brúðkaup Svanhvítar og Hrafnkels var

vel lukkað og gleymist seint. Anton Örn fermdist líka á árinu og Ölver óðagot

varð fimmtugur, allt merkir atburðir. Svo fórum við til Þýskalands þegar Elli

var að klára sumarskólann þar og við ferðuðums víða, frábær ferð og vel lukkuð

í alla staði.

Við ætlum að vera á Egilstöðum á þessu gamlárskvöldi hjá börnum og barnabörnum

Svo verða gestir hjá okkur á nýársdagskvöld.

 

Góða skemmtun í kvöld og gætið ykkur á flugeldunum.

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.12.2008 12:19:48 / saramikk

ENN JÓLIN


 

 

 

Þetta hafa verið góðir dagar. Á jóladag var boð í Þrastalundi og mætt þar yfir 50 manns.

Það er besta mæting frá upphafi held ég, ótrúlegt hvað komast margir fyrir í þessu litla húsi.

Þetta var að öllum líkindum síðast jólaboðið hjá mömmu, vonandi er hún að flytja eftir áramót.

Elli fór suður annan í jólum, Kobbi fór til Kanada aftur í gær. Dandý og Helga á sínum stað.

Ég læt mér nægja að ganga hér um á svæðinu á fjall eða í fjöru og líkar það

bara vel. Jólafríið er búið að sinni, vinna á morgun svo það er best að njóta dagsins

 og fara út í góða veðrið.

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.12.2008 17:18:37 / saramikk

jólin

Það er allt orðið klárt fyrir jólin hér í Heiðmörk 9. Steikin er komin í ofninn og humarsúpan í gerjun. Í gær var skötuveisla hjá Jónu og Atla og þar voru all nokkrir Mikkarar saman komnir ásamt viðhengjum, alltaf frábært að koma til þeirra hjóna. Á morgun ætlar stórfjölskyldan að koma saman og síðan verða Dandý og Keli með sín börn í kvöldmat hjá okkur.

Ég, Toni og Elli verðum hér þrjú í kvöld og ætlum að hafa það verulega næs, vonandi verður það svo hjá öllum þarna úti.  

  

 

             Gleðileg jól elskurnar.


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.12.2008 12:49:42 / saramikk

jólin



Það eru að koma jól eina ferðina enn.

Ég er búin að baka allt of margar kökusortir., en trúlega verða þær borðaðar

í harðindunum í vetur. Kannski ekki mjög næringaríkt en hvað með það.

Ég á enn eftir að kaupa nokkrar jólagjafir, vildi vera komin til Reykjavíkur í nokkra daga. bara að leika mér og versla, en það bíður betri tima..

Það eru svo sem næg verkefni framundan og alltaf eitthvað um að vera hér í fjórðungnum.

Í morgun fórum við á Balaborg á Brekkuna í heitt súkkulaði og vöfflur.

áttum þar góða stund.

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.11.2008 21:10:02 / saramikk

eitt og annað


Smá fréttir héðan.

Það eru að koma jól og auðvitað er verið að dúllast eitt og annað eins og

gengur. Elli er hjá okkur eins og er hann fer á sunnudag, en kemur aftur

vonandi um tuttugasta en stoppar bara stutt þá. Hann er að skrifa ritgerð og er

trúlega að fara áfram í nám eftir áramót.

Um síðustu helgi skrapp ég til Akureyrar ásamt Dandý, Jónu Báru og Ástu

góð ferð og skemmtileg. Svo á að fara á jólahlaðborð á Brekkunni á laugardagskvöldið.

Það er mikið að gera hjá Tona, hann er búinn að vera að verka síld og svo er nóg að

gera á Landatanga.

Svo það eru bara góðar fréttir frá okkur.

 

 

 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

08.11.2008 21:58:29 / saramikk

ooo


 

Frábærir dagar. Karitas er hjá okkur þessa helgi og við höfum haft nóg fyrir stafni.

Í dag kláruðu Keli og Tona að setja nýju gluggana í húsið og viti menn,

það er gott útsýni úr öllum gluggum sem ég var bara búin að gleyma, því það er  svo langt

síðan ég hætti að sjá út um þá. Ég er líka búin að sauma slatta í dag er að dulla við

jólagjafirnar. Í gær átti Héðinn Ingvi afmæli, en Skafti Kristján í dag, hefði orðið 37.ára.

hér logar á mörgum kertum fyrir þennan góða dreng.

Sara og Siggi voru að keppa í dansi í dag og erum með fjögur gull eftir daginn.

Frábær árangur hjá þeim.

 

 

 

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

01.11.2008 14:34:31 / saramikk

1. nóv.



 

 

Við hjónin vorum í mat hjá Gumma og Ástu i gærkvöldi, fengum góðan mat og áttum með þeim frábæra stund. Ég byrjaði daginn í dag á jóga síðan bakaði ég hunangsköku og

skellti í rúgbrauð. Ég fór svo með Tona á göngu út í fjöru að kíkja í minkagildrur.

Einn minkur fannst hann er lifandi, ég er að hugsa um að hafa hann sem gæludýr

hann er svo fallegur. Hef hann að sjálfsögðu í búri.

Ég er að fara niður í Landatanga að hjálpa Tona einhverja stund að sníða og

síðan er slökun það sem eftir er dagsins. 

 Í dag er elsta barnabarnið mitt, hann Aðalsteinn 17.ára .Vona að hann komi

austur í heimsókn þegar hann er kominn með bílpróf.

 

 

 

 

 

 

 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.10.2008 13:12:51 / saramikk

vinnudagar


Ég er í letikasti, nenni ekki að klára að þrífa til í stofunni.

Allt er á öðrum endnum hér enda verið að vinna við að skifta um glugga

og hurðir í húsinu og þá þarf að sparsla og mála gluggana að innanverðu.

Keli er búinn að vera hér undanfarnar helgar að vinna, það á eftir að

setja þrjá glugga í og svo að klæða húsið að utan.

Dandý og Sanda komu með í gær. Erla og Elís voru í Mýnesi.

Það er sem sagt búið að klára í stofunni svo það væri gott að fá smá

orku í tiltektina, held bara að ég skelli mér í gallann og fari á göngu

þá verð ég örugglega góð á eftir. Það er vetrar veður hjá okkur hér á

Stöddanum í dag, það er bara gott að fá tilbreytingu í veðrinu eins og

öðru.

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
RSS tengill